Erna Höskuldsdóttir | þriðjudagurinn 15. október 2024
Jógahjartað og gullskórinn
Nemendur og starfsfólk tóku þátt í hugleiðsludeginum 9.10. sl. eða jógahjartanu. Skólinn hefur tekið þátt í þessum viðburði í nokkur ár. Jógahjartað er styrktarfélag sem vinnur að því að veita börnum og unglingum aðgang að kennslu á jóga og hugleiðslu innan skólakerfisins og boða til friðar á afmælisdegi bítilsins Johns Lennon.
Eftir hugleiðsluna sem allir tóku þátt í saman á sal skólans var "Gullskórinn" afhentur. Gullskórinn er verðlaunagripur til námshóps sem vinnur göngum í skólann átakið. Elsta stig vann mið stig naumlega. Óskum þeim til hamingju með titilinn góða og hvetjum í leiðinni til virks ferðamáta til og frá skóla.