Íþróttaskóli HSV
Íþróttaskóli HSV hefst mánudaginn 05. október á Þingeyri og stendur yfir fram að jólafríi. Æfingar fara fram í íþróttahúsinu á Þingeyri. Æfingarnar eru fyrir 1.-7. bekk grunnskólabarna og er þjálfari Sigþór Snorrason.
Skráning er hafin og fer fram hér https://hsv.felog.is/
Æfingarnar verða grunnþjálfun barna og unglinga ásamt boltaskóla hvar farið verður í til skiptist blak, fótbolta, handbolta og körfubolta ásamt öðrum boltaleikjum og æfingum.
Verð er kr. 2.900,-
Markmið íþróttaskóla HSV:
. Fá sem allra flest börn til að iðka íþróttir
. Að fyrstu kynni barna af íþróttaiðkun sé jákvæð
. Að börn fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum
. Að auka gæði þjálfunar
. Lækka kostnað heimila við íþróttaiðkun barna
. Auka grunnþjálfunarhluta æfinga, almenna hreyfingu, hreyfiþroska og hreyfigetu
Ef það vakna einhverjar spurningar vinsamlegast hafið samband við Heiðar Birnir Torleifsson, yfirþjálfara íþróttaskóla HSV á póstfanginu [email protected]