Erna Höskuldsdóttir | þriðjudagurinn 30. apríl 2024
Fræðsla um kvíða fyrir foreldra leik- og grunnskólabarna
Fræðslan fer fram í sal Grunnskólans á Þingeyri miðvikudaginn 8. maí kl. 16:30
Leiðbeinandi: Sólveig Norðfjörð sálfræðingur
Markmið með fræðslu er að foreldrar þekki einkenni kvíða og tileinki
sér hjálplegar leiðir til að auka sjálfstraust og takast á við kvíða.
Kynntar verða aðferðir til að hafa jákvæð áhrif á hegðun og
hugsunarhátt barna. Námskeiðið er ætlað foreldrum en starfsfólk leik-
og grunnskóla er velkomið að taka þátt.