Reykjasnúðarnir stóðust væntingar
Nemendur í 6-7 bekk koma heim seinnipartinn í dag. Reykjaskóla snúðarnir brögðuðust vel í
gærkvöldi og stóðust væntingar nemenda frá sögusögnum fyrri nemenda sem dvalið hafa í skólabúðunum. Stóra hárgreiðslukeppnin og diskó var í gærkveldi og nemendur skemmtu sér konunglega og væru til í að vera aðra viku að Reykjum. Myndir verða settar inn seinna úr ferðinni.
Uppskrift að Skólabúðarsnúðum:
540 gr hveiti
45 gr sykur
7 gr salt
15 gr
þurrger
45 gr olía
3 dl volgt vatn.
Þurrefnin sett í skál og
blandað saman. vökvinn settur út í og blandað saman.
Látið hefast í volgu
vatnsbaði með stykki yfir sér í 20 mín.
Nú er hveiti sáldrað á borðið og
deigið hnoðað og svo flatt út.
Ég dreifi kanilsykri yfir og rulla svo upp
og sker svo í bita ca. 1.5 til 2 cm bita. snúðarnir aftur látnir hefast í 30
mín
og svo bakaðir í ofninum 180 °c í ca. 20 mín eða þar til þeir eru fallega
brúnir. Mér finnst minna betra en meira en smekkur manna er
misjafn.
Glassúr :
3.5 dl flórsykur
1 msk kakó
4 msk vatn (lagað kaffi)
2 msk brætt smjörlíki.